þriðjudagur, febrúar 03, 2004
Survivor All-Stars byrjaði á skjá einum í gær! Þetta var rosa fínn þáttur og það er nokkuð ljóst að þetta verður soldið mikið öðruvísi heldur en áður hefur verið. Það eru auðvitað allir þarna í annað skiptið og allir vita hverjir allir eru.. Það eru þrjú lið og það eina sem liðin fá til að byrja með er ein sveðja, og pottur til að sjóða vatn og vatnsbrunnur. Vatnið í brunninum er ógeðslegt og það þarf að sjóða það áður en það er drukkið. En liðin þurfa sjálf að kveikja eld sjálf til að geta soðið vatnið það hefur engum tekist ennþá og og hafa liðin því ekki fengið vatn í þrjá daga.. þetta er svakalegt. SVAKALEGT segi ég og skrifa! Ég veit ekki með ykkur, en ég er spennt! Í gær var þessi kosin út.. hehe no million dollars for you my friend!