föstudagur, febrúar 06, 2004

Það lýtur út fyrir að veðrið um helgina henti illa til ferðalaga. Það hefur því verið ákveðið að fresta för í Bárðardal allavega þangað til í fyrramálið.. þó er ég ekkert bjartsýn að það verði eitthvað skárra þá.. sjáum til.

En í aðra sálma.. ég fór í bíó í gær og sá myndina Lost in translation. Hún er tilnefnd til 4 óskarsverðlauna, fyrir besta leikara í aðal, bestu mynd, bestu leikstjórn og besta handrit. Þannig að við áttum von á góðu. Mér fannst þessi mynd alveg frábær. Hún er um tvo ólíka einstaklinga sem hittast á hóteli í Tókíó og með þeim tekst vinskapur. þau eru bæði mjög lost í þessarri borg þar sem enginn skilur þau og allt er öðruvísi. Myndin er mjög vel tekin og stemningin í henni kemst mjög vel til skila finnst mér. Bill Murray leikur í henni (og er tilnefndur fyrir) og mér finnst hann alveg pottþéttur. Hef aldrei séð hann svona góðan.. Sofia Coppola leikstýrir og er líka handritshöfundur.. greinilega hæfileikakona þar á ferð.. Ég mæli sko með þessarri mynd..

Hann er harðjaxl þessi borgarstjóri! Þokkalega..

Blog Archive