Jæja, ég lét verða af því. Ég pantaði mér tíma í klippingu! Til hamingju ég! það er sko alveg ár síðan ég fór síðast í almennilega klippingu (ég er sko að fara á árshátíð og seinast þegar ég lét klippa mig þá var ég einmitt líka að fara á árshátíð! sniðugt). Ég hef einusinni held ég látið aðeins særa í millitíðinni, en núna er sko mikil nauðsyn að gera eitthvað í þessu hári mínu.. það er sko allt of sítt! Ég sem sagt tók ráðleggingum Möttu og pantaði tíma hjá Grímu. Björn Görn, ekkert persónulegt.
En allavega. Það stendur mikið til í tölvmálum hjá okkur hjúunum. Við erum að bisa við að setja upp sörver heima hjá okkur og ætlum að því tilefni að gera nýja og mikluflottari síðu og jafnvel fá okkur nýtt lén líka.. okkar eigið lén. þá getum við sett miklu meira af dóti á síðuna, því við verðum með miklu meira diskapláss.. við erum löngu búin að fylla plássið sem við erum með núna, ekkert smá ömó. En Þetta verður nú örugglega ekki alveg strax, því það er dáldið mikið vesen að setja þetta upp virðist vera og svo á ég nú alveg eftir að hanna síðuna! en ég vildi bara segja ykkur frá þessu.. ég hlakka svo svaka mikið til!! Mér finnst alveg rosa gaman að búa til svona síður þó að ég kunni eiginlega ekkert í því. þannig að...... verið viðbúin breytingum... oohh hvað þetta verður gaman! hvaða lén ættum við að fá okkur?