Góðan daginn allir!
Ég er bara hress í dag þakka ykkur fyrir að spyrja.. er mjög ánægð með daginn hingað til :)
Það lýtur út fyrir það að ég sé að fara, ásamt allri fjölskyldunni, norður í Bárðardal (sem er rétt hjá Goðafossi sem ég og Pétur skoðuðum í sumarið sem leið híhí). Tilefnið er 70 ára afmælið hennar ömmu. Það verður víst gist í einhverjum heimavistarskóla og bara svaka veisla! Það fara tveir pakkaðir bílar héðan frá Reykjavík og einn pakkaður bíll frá Hornafirði, alls 15 manns. Það eina sem getur stoppað för er slæmt veður og færð. Í augnablikinu er útlitið ekkert svakalega gott en maður veit aldrei..