mánudagur, febrúar 02, 2004

Ég og Pétur rústuðum íbúðinni okkar í gær.. við tókum smá kast og hentum út ljótu skápunum sem við vorum með í stofunni, vorum gjörsamlega komin með gubbið upp í háls og rétt náum að redda þessu áður en við gubbuðum á gólfið. Við færðum svo líka tölvuna út úr fataskápnum í svefnherberginu og fram í stofu, þannig að núna er hægt að opna fataskápinn alveg til fulls og líka hægt að ganga á auðveldan hátt í kring um rúmið okkar. Þetta er æðislegt. Við keyptum okkur líka eina forláta bókahillu og settum hana á ganginn.. hún er svaka fín! Núna er dótið sem var í þessum skápum (sem núna eru frammi á stigagangi.. oj) út um alla stofuna og á sér eiginlega engan samastað.. en mér er alveg sama.. það er allt betra en þessir skápar!

í kvöld: fyrsti þáttur í Survivor all-stars.. daraddadammmmmm..

Hei, munið þið eftir Groundhog day? það er einmitt í dag! eins gott að þetta verði skemmtilegur dagur, ha!

Blog Archive