Það var nú annsi súrt í broti að tapa á móti slóvenunum í gær.. díses hvað þetta var asnalegur kafli í leiknum.. þessi slæmi. Alveg fáránlegur. Þetta umturnaðist bara allt á nokkrum mínútum. "Við" vorum klaufar og dómararnir voru hálfvitar og Slóvenarnir annsi grófir. Eftir þetta nánast augnablik var ekki aftur snúið og "við" töpum með 6 marka mun. Þetta var í raun alveg fáránlegt svo ég endurtaki mig aðeins, alveg fáránlegt! Í heildina litið þá fannst mér "við" spila bara ágætlega miðað við barsmíðarnar sem voru við lýði. Það klúðruðust samt nokkur dauðafæri og sendingarnar sumar voru bara út í loftið.. en samt var þetta nokkuð gott fannst mér.. svona þrátt fyrir allt. Dómararnir mega samt alveg skammast sín.. þetta var alls ekki þeirra dagur.
En nú er kominn nýr dagur og framundan leikur við Ungverjaland. Ég hlakka svaka til að sjá þann leik. Ég heyrði talað við Adolf Inga á rástvö og hann var að tala um hvað þeir voru allir stóri leikmennirnir. Ég held að hann hafi sagt að það séu 7 leikmenn 2m á hæð og margir vel yfir 100kg. Einn er víst svo stór og feitur að það er ekki hægt að segja að hann sé íþróttamannslega vaxinn. Sá heitir Richard MEZEI.. hehheh.. hlakka til að sjá hann. Ég er sko alveg pottþétt að við vinnum þennan leik og spái því að hann fari 28-25 fyrir Ísland.... KOMASO!!