föstudagur, janúar 30, 2004

Það sem fer í taugarnar á mér í dag:
- Í allan dag á mbl.is er búin að poppa upp einhver óþolandi auglýsing frá nb.is.. í hvert skipti sem maður fer á forsíðuna. Þetta er gjörsamlega óþolandi. Ekki fara þangað í dag...
- Að tvær helvítis mígrenistöflur skulu kosta 2300 kall fer mjög í taugarnar á mér...
- Hljómsveitin Die Herren er líka óþolandi. Þetta er svona U2 cover band, sem ferðast um heiminn og spilar U2 lög. Algjörar hermikrákur. Asnalegt þegar fólk reynir að koma sjálfum sér áfram með því að stæla einhverja aðra. Sérstaklega þegar menn eru að stæla eitthvað eins heilagt og U2 er í mínum augum..
- DV þoli ég alls ekki. þvílíkt og annað eins sorprit hef ég aldrei áður lesið. þetta er slúðurblað í dulbúningi fréttablaðs. ég þoli ekki hvernig þau nafngreina bara jón og gunnu út í bæ án þess að hafa neitt fyrir sér... ömurlegt alveg, ég trúi ekki neinu sem þar stendur.
- ....
jamm þar hafið þið það. það er ekki magt sem fer í taugarnar á mér í dag eins og þið sjáið.. þetta er bara nokku? góður dagur. þetta er allavega ekkert alvarlegur pirringur er það nokkuð??

Blog Archive