þriðjudagur, janúar 20, 2004
þetta er búinn að vera þokkalega myglaður dagur hingað til.. Vaknaði miklu seinna en ég ætlaði að vakna og þá fór eiginlega allt í rugling hjá mér, þeas skipulagið sko. Svo er veðrið ekki til að hrópa húrra fyrir og það dregur bara úr mér og gerir mig sybbna. Ég er sem sagt mygluð og sybbin og í gallabuxum sem eru búnar að blotna og þorna tvisvar í dag.. Ég vil fara heim í bað og leggjast uppí sófa og kveikja á kertum og lesa bók og fámér gott kaffi. Það væri lovlí.