Ég fékk þessa skemmtilegu sögu senda í pósti frá henni Unni. Hún heitir mánuður framyfir og ég veit ekkert hver skrifaði þetta, en það var allavega ekki ég.. hefst þá lesturin:
Þegar ungur eiginmaður kemur heim eitt kvöldið tekur konan á móti honum með því að hlaupa upp um háls honum og segja; Ástin ég er kominn einn mánuð fram yfir. Ég er viss um að nú er ég ófrísk, heimilislæknirinn okkar sagði að hann gæti ekki fullvissað mig um fyrr en hann fengi niðurstöðu úr rannsókninni á morgun og við skyldum þegja yfir þess þangað til. Að morgni næsta dags kom maður frá Orkuveitunni til þess að loka fyrir rafmagnið, þar sem ungu hjónin höfðu ekki greitt síðasta reikning. Hann hringdi dyrabjöllunni og þegar unga frúin kom til dyra sagði hann; "Þú ert kominn mánuð fram yfir". "Hvernig í ósköpunum veist þú það?" Spurði unga frúin. "Nú það er allt svona skráð kyrfilega í tölvukerfi Orkuveitunnar" var svarið. "Heyrðu þetta sætti ég mig sko ekki við og ég ætla að tala við manninn minn í kvöld og hann mun örugglega hafa samband við ykkur á morgun" sagði unga frúin og skellti hurðinni. Þegar eiginmaðurinn kom heim fékk hann að heyra allt um persónunjósnir Orkuveitunnar og hann fór vitanlega öskuvondur á fund Alfreðs Þorsteinssonar morguninn eftir. "Heyrðu Alfreð þetta er nú algjörlega út í hött. Hvað eiginlega í ósköpunum gengur að ykkur, þið eruð með það í skrám ykkar að við séum kominn mánuð fram yfir, hvern andskotann að kemur ykkur það við?". "Slakaðu nú á þetta er ekkert mál, borgaðu okkur bara og þá tökum við þetta úr skránni okkar."svaraði Alfreð". Borga ykkur ert ekki í lagi, nú ef ég hafna því hvað þá?" "Nú þá klippum við bara á og tökum þig úr sambandi." "Og hvað á þá konan mín þá að gera?" "Nú hún verður þá bara að nota kerti." Svaraði Alfreð.
P.S. þetta var nú soldið fyndið var það ekki?? Það er bara eitt sem ég skil ekki alveg, og það var afhverju konan sendi manninn sinn til að redda málunum.. þetta var svona eins og hún væri að klaga í mömmu eða eitthvað. Frekar glatað. Skemmtilega saga engu að síður...