Dagbókin hennar Heiðu

föstudagur, febrúar 20, 2004

Ég er í vinnunni. Ég er ótrúlega syfjuð. Einu sinni var ég alltaf hressust á föstudögum og mest þreytt á mánudögum. Núna er þetta eiginlega búið að snúast við. Nú er ég oft þreytt á föstudögum og yfirleitt svaka hress á mánudögum. Þýðir þetta að ég sé orðin gömul? Eða er þetta út af því að núna er ég ekki á stanslausu djammi um helgar og ennþá þunn á mánudögum? þetta er merkilegt..

miðvikudagur, febrúar 18, 2004

... og fyrst við erum á þessum fegrunar nótum í dag þá vil ég endilega benda ykkur á eitt enn sem ég var að finna.. færið músina yfir myndirnar og raunveruleikinn kemur í ljós.. tékkið á þessu hérna og hérna og hérna.. finnst ykkur þetta ekki sikk? Það finnst mér..
Ég er búin að vera að skoða vefinn hjá extreme makeover þáttunum.. þar er hægt að skoða svona fyrir og eftir myndir af liðinu sem er búið að skipta um sig sjálf.. þessi breytti sér til dæmis í þessa.. Þessi gaur breytti sér í þennan sörf gaur.. og þessi gaur og þessi gella giftu sig sem einhver allt önnur.. Þetta er nú alveg fáránlegt.. það er ekkert bara verið að laga einhver lýti heldur er þetta fólk alveg að umturna sér. Það er alveg óþekkjanlegt á eftir. Hver og einn er að fara í alveg 10 - 20 aðgerðir.. Það er samt alveg sama hvað þetta fólk er óánægt með sjálf sig, maður losnar aldrei við sjálfan sig.. og ef maður er leiðinlegur og enginn vill tala við mann (eins og þetta fólk er kannski, hver veit), þá er engin aðgerð til við því.. sorrí fólks, jú ar stökk!
Já þá er að koma að því að halda árshátíð hérna í vinnunni. Ekkert nema gaman að segja frá því. Að þessu sinni verður hún haldin á Grand Hótel núna á laugardaginn 21. feb.... og ég veit ekkert í hverju ég á að fara. Hef ekki hugmynd. Ég á ekkert og engan pening til að kaupa eitthvað. Þetta er sumsé mikil klemma. Eins gott að ég er nýbúin í klippingu og er með algjört pæjuhár, það dregur örugglega athyglina frá lörfunum sem ég þarf að vera í.. sjáum til hvernig fer..

En þetta eru Grissom og Warrick Íslands.. kúl gaurar.. en menn eru óneytanlega meira kúl í sjónvarpinu, verð ég að segja.

þriðjudagur, febrúar 17, 2004

sjáiði hvað ég á krúttlegan lítinn frænda :)

mánudagur, febrúar 16, 2004

vaaaááá! ég varð bara að linka inn á þessa mynd sem tryggvi er með á heimasíðunni sinni. Ekkert smá flott mynd!! síjitt!
En allavega þá er ég bara í vinnunni.. er bara í þokkalegu stuði.. það er allir að dást að nýju hárgreiðslunni minni, ekkert smá gaman. Ég er sko algjör pæja!

sunnudagur, febrúar 15, 2004

helú.. ég er að bisa við að búa til nýja síðu. Ég kann bara ekki alveg nógu mikið. Það er svo pirrandi þegar maður er bara alveg lost og veit ekki hvernig maður á að gera það sem maður vill gera. það er mjög pirrandi. Ég er ein heima, Pétur er að vinna á barnum. Ég var að horfa á The Birds eftir Alfredd Hiddskokk. Ekkert smá krípí mynd. Eiginlega ekki mynd sem maður (ég) á að horfa á einn heima í rigningu og roki.. það er ekkert sérlega sniðugt.. oniii...

föstudagur, febrúar 13, 2004

á Þriðjudagskvöldið þá skelltum ég og Pétur okkur í bíó með Bjarna, Ingu og Jóni Atla. Við fórum í smárabíó að sjá myndina Big Fish með Ewan McGregor og Albert Finney. Hún er alveg frábær! Hún er mjög öðruvísi og kemur manni endalaust á óvart ogmaður hlær og hlær og fer brosandi út úr bíóinu. Endilega skellið ykkur á hana :)

Annars er ég að deyja úr spenningi.. er að bíða efti að komast í klippingu.. hvernig ætti ég að láta klippa mig?? kannski svona? eða kannski svona? já eða bara svona? hmmmmmm.. þetta verður erfitt sko..

fimmtudagur, febrúar 12, 2004

Jæja, ég lét verða af því. Ég pantaði mér tíma í klippingu! Til hamingju ég! það er sko alveg ár síðan ég fór síðast í almennilega klippingu (ég er sko að fara á árshátíð og seinast þegar ég lét klippa mig þá var ég einmitt líka að fara á árshátíð! sniðugt). Ég hef einusinni held ég látið aðeins særa í millitíðinni, en núna er sko mikil nauðsyn að gera eitthvað í þessu hári mínu.. það er sko allt of sítt! Ég sem sagt tók ráðleggingum Möttu og pantaði tíma hjá Grímu. Björn Görn, ekkert persónulegt.

En allavega. Það stendur mikið til í tölvmálum hjá okkur hjúunum. Við erum að bisa við að setja upp sörver heima hjá okkur og ætlum að því tilefni að gera nýja og mikluflottari síðu og jafnvel fá okkur nýtt lén líka.. okkar eigið lén. þá getum við sett miklu meira af dóti á síðuna, því við verðum með miklu meira diskapláss.. við erum löngu búin að fylla plássið sem við erum með núna, ekkert smá ömó. En Þetta verður nú örugglega ekki alveg strax, því það er dáldið mikið vesen að setja þetta upp virðist vera og svo á ég nú alveg eftir að hanna síðuna! en ég vildi bara segja ykkur frá þessu.. ég hlakka svo svaka mikið til!! Mér finnst alveg rosa gaman að búa til svona síður þó að ég kunni eiginlega ekkert í því. þannig að...... verið viðbúin breytingum... oohh hvað þetta verður gaman! hvaða lén ættum við að fá okkur?

þriðjudagur, febrúar 10, 2004

Ég er með tannpínu. Það kemur sér einstaklega illa. Ekki það að það sé ekki alltaf slæmt að hafa tannpínu, heldur er það einstaklega slæmt núna því ég get lítið gert í því. Ég held að tannpína sé nálægt því að vera mest pirrandi sársauki sem til er (allavega sem ég hef upplifað). Hann er viðloðandi.. eins og suð fyrir eyrum þegar maður er nýkominn af balli. Ef ég ætti þrjár óskir þá held ég að ég myndi nota eina óskina í að láta það vera ódýrt að fara til tannlæknis, eða kannski bara láta tennur verða óskemmanlegar.. alltaf hreinar og hvítar og enginn karíus og baktus. Já ég held það, ég myndi bara stroka konseptið allt út. Maður væri bara með tennur og ekkert meira um það að segja..

En vitiði hvað? Hann Elías bróðir er sko kominn með bloggsíðu sem ég hvet alla til að kíkja á.. hann er að vísu bara nýbyrjaður en endilega kíkiði í Sprellapleis ;)

Blog Archive